Started on 26. apríl, 2024

PADI Deep Diver skírteini gefur þér réttindi til þess að kafa niður á 40 metra dýpi.

Réttindin eru samþykkt af öllum viðurkenndum köfunarmiðstöðvum í heiminum.

Sem félagsmaður í Sportkafarafélagi Íslands kafað niður á 40 metra í köfunarferðum félagsins.

Farið í djúpköfun hér heima og erlendis.

Skráð þig á PADI Tech 40 framhaldsnámskeið.

Tekið fleiri PADI Specialty námskeið.

Farið á PADI Nitrox námskeið til þess að lengja botntímann.

Fullkomið flotjafnvægi þarf að hafa í djúpköfun.

Nemandi á PADI-Deep Diver námskeiði þarf að hafa gott vald á flotjöfnun.

Nánar um PADI Deep Diver djúpköfunarnámskeið

Verð námskeiðs er kr. 69.900.-

Greitt er fyrir námskeið við skráningu.

Innifalið í verði er:

Kennslugögn á netinu

Kennsla

PADI skírteini

Ekki innifalið í verði:

Akstur á köfunarstað (5.000)

Leiga á köfunarbúnaði (15.000)

ATH!

Námskeiðsgjald er ekki endurgreitt ákveði nemandi að ljúka ekki námskeiði.

Til að skrá sig á þetta námskeið eða fá meiri upplýsingar sendir þú póst á marbendill@marbendill.is
Einnig hægt að fá meiri upplýsingar í síma 8597220

Fyrirkomulag

Hámarksfjöldi nemenda á hverju námskeiði eru 4.

Nemendur greiða námskeiðsgjald. Afhent eru kennslugögn PADI Deep Diver djúpköfunarnámskeiðsins.

Áætlaður tími á námskeiði 24 stundir með heimalærdómi.

PADI Deep Diver veitir réttindi til að kafa niður á 40 metra. Þrátt fyrir það er ekki kveða reglur PADI á um að kafa ekki niður fyrir 30 metra á námskeiðinu.

Hægt er að klára þetta námskeið á einum degi, stundum tökum við tvo dagparta:

Best að klára bóklega hlutan á netinu áður en kafað er

Undirbúningur og köfunarplan

Tvær kafanir á milli 18 og 30 metra

Endurgjöf á hæfni

Forkröfur

Ef þú ert í einhverjum vafa hvort þú uppfyllir skilyrði til köfunarnáms hafðu þá samband við okkur áður en þú greiðir fyrir námskeið.

Hafa lokið að minnsta kosti þremur af fimm köfunum í PADI Advanced Open Water framhaldsnámskeiðinu.

Vera 17 ára eða eldri.

Hafa gott flotjafnvægi.

Fylla út PADI heilsufarsyfirlýsingu við skráningu eða skila læknisvottorði.

Ekki vera barnshafandi.

Námsefni

Allt námsefni PADI er á ensku á netinu

What's your reaction?
0Cool0Bad0Lol0Sad
AncoraThemes © 2024. All Rights Reserved.

AncoraThemes © 2024. All Rights Reserved.