Byrjendanámskeið

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Byrjendanámskeið

18/04/2019 - 20/04/2019

Kr. 109.900
Byrjendanámskeið PADI Open Water. Nemandi með kennara. Marbendill köfunarskóli.

Byrjendanámskeið gefur þér PADI Open Water réttindi niður á 18 metra

Skráning hér á næsta námskeið *

*Athugið að greiðsluseðill myndast í heimabanka við skráningu. Hafið samband við okkur áður en skráning fer fram.

 

Byrjendanámskeið í köfun er bæði skemmtilegt og krefjandi.

Best er að skrá sig með að minnsta kosti 10 daga fyrirvara.

Þú færð sendan hlekk á bóklegan hluta PADI Open Water e-Learning.

Þú klárar bóklegan hluta áður en verklegur hluti hefst.

Hvenær og hvar á að mæta á byrjendanámskeið?

Við byrjum á að taka saman dótið á starfsstöð okkar og þaðan er farið í sundlaug í fyrsta tímann.

Allir tímar byrja á því að taka saman köfunardótið og enda á því að pressa á kúta og ganga frá. Þannig fá nemendur þjálfun í réttri meðhöndlun búnaðar til viðbótar við hefðbundna köfunarkennslu.

Hvað get ég gert með köfunarréttindi?

  • Réttindin eru samþykkt af öllum viðurkenndum köfunarmiðstöðvum í heiminum
  • Þú getur því fengið leigðan köfunarbúnað
  • Fengið áfyllingu á köfunarloftkúta
  • Samhliða útgáfu skírteinis verður þú hluti af PADIsamfélaginu
  • Padi samfélagið er stærsta samfélag kafara í heimi
  • Þú getur kafað ákveðið og skipulagt köfun með köfunarfélaga
  • Tekið þátt í köfunarferðum með Sportkafarafélagi Íslands (að því gefnu að þú gangir í félagið)
  • Farið í köfunarferðir til útlanda
  • Skráð þig á PADI Advanced Open Water framhaldsnámskeið
  • Farið á PADI Specialty námskeið
  • Skráð þig í PADI ReAcrivate ef hlé er gerð á köfun í langan tíma

 

Athugið að best er að skrá sig um tíu dögum fyrir auglýst námskeið. Þannig næst góður tími til að lesa og gera verkefni í PADI e-Learning á netinu. 

Innifalið í verði á byrjendanámskeiði er:

  • Kennslugögn
  • Kennsla
  • PADI Open Water köfunarskírteini
  • Leiga á köfunarbúnaði á kennsludögum

Ekki innifalið í verði:

  • Ef nemendur ná ekki að uppfylla lágmarks viðmið og þurfa aukatíma umfram kennslufyrirkomulag PADI  er greitt kr. 9.900.- fyrir hvern auka dag (1-2 kafanir)
  • PADI þurrgallaskírteini 
  • Akstur á köfunarstað

Skráning á næsta byrjendanámskeið.

Details

Start:
18/04/2019
End:
20/04/2019
Cost:
Kr. 109.900
Event Category:
Event Tags:
,
Website:
http://www.marbendill.is/namskeid/openwater-byrjendanamskeid/

Organizer

Marbendill köfunarskóli
Phone:
6986336
Email:
marbendill@marbendill.is
View Organizer Website

Venue

Byrjendanámskeið Open Water
Háaleitisbraut 117
Reykjavík, Iceland
+ Google Map
Phone:
6986336
View Venue Website