PADI Peak Performance köfunarnámskeið
Hvað get ég gert með PADI Peak Performance réttindi?
PADI Peak Performance köfunarnámskeiðið er miðað að því að þú náir fullkominni stjórn á flotjafnvægi.
- Réttindin gera þeir kleift að taka þátt í PADI Deep Diver námskeiðinu.
- Þú öðlast meira sjálfstraust.
- Loftnotkun verður betri með góðu flotjafnvægi.
- Með góðu flotjafnvægi og nægu lofti verður þú hæfari til að takast á við verkefni neðansjávar.
- Myndataka verður auðveldari í góðu flotjafnvægi.
- Þú getur áhyggjulaust tekið öryggisstopp á hvaða dýpi sem er.
- Getur stoppað, flotið og skoðað án þess að tapa flotjafnvæginu.

Fullkomið flotjafnvægi. Peak Performance Buoyancy.
Nemandi á PADI Peak Performance námskeiðinu lærir að ná betri stjórn á niður-og uppstigi. Nemendur nýta sér öndun til að stýra flotbreytingum. Myndataka neðansjávar verður betri ef flotjafnvægi er gott.
Nánar um köfunarnámskeiðið
Verð námskeiðs er kr. 69.900.-
Greitt er fyrir námskeið við skráningu.
Innifalið í verði er:
- Kennslugögn.
- Kennsla.
- PADI skírteini.
- Aðgangseyrir að sundlaug.
Ekki innifalið í verði:
- Leiga á köfunarbúnaði.
- Akstur á köfunarstað. Nemendur verða að gera ráð fyrir því að koma sér sjálfir á köfunarstað.
ATH!
PADI Peak Performance staðallinn gerir einungis ráð fyrir tveimur stuttum köfunum eða samtals 5 tíma námskeiði.
- Í köfunarskóla Marbendils leggjum við ofuráherslu á flotjafnvægi.
- Því hefur verið bætt við einni köfun í sundlaug og kafanir í sjó/vatni hafa verið lengdar.
- Verð á námskeiðinu eru því ekki sambærilegt við verð annarra á samskonar námskeiði.
Námskeiðsgjald er ekki endurgreitt ákveði nemandi að ljúka ekki námskeiði.
Nemendur greiða námskeiðsgjald og fá afhent kennslugögn PADI Peak Performance Buoyancy.
Dagur 1: ( 5 tímar).
- Köfun í sundlaug.
- Flotæfingar.
Dagur 2: ( 6-8 tímar).
- Tvær kafanir.
- Flotæfingar og hang.
Er þetta námskeið fyrir þig?
Ef þú ert í einhverjum vafa hvort þú uppfyllir skilyrði til köfunarnáms hafðu þá samband.
- 17 ára eða eldri.
- Handandhafi PADI Open Water skírteinis. (Eða sambærilegs skírteinis frá öðrum viðurkenndum köfunarsamtökum).
- Vera í góðu líkamlegu formi.
- Kunna að synda og líða vel í vatni.
- Fylla út PADI heilsufarsyfirlýsingu við skráningu eða skila læknisvottorði.
- Ekki vera barnshafandi.
- Allt námsefni PADI er á ensku.
- Marbendill köfunarskóli leggur áherslu á aðgengi námsefnis fyrir alla nemendur.
- Þess vegna höfum við boðið upp á útdrátt námsefnis á íslensku.
[yop_poll id=“1″]