PADI Night Diving Specialty – Næturköfun
Hvað get ég gert með PADI Night Diving réttindi?
PADI Night Diving skírteini gefur þér réttindi til þess að kafa eftir sólsetur.
- Réttindin eru samþykkt af öllum viðurkenndum köfunarmiðstöðvum í heiminum.
- Þú getur kafað, ákveðið og skipulagt köfun að kvöldi til eftir sólsetur.
- Kafað næturköfun á ferðalögum í útlöndum með viðurkenndum köfunarþjónustu aðilum.
- Þú kynnist nýrri hlið á lífríki sjávar.
- Sérð fiska sofa með opin augu.
- Skoðað lífverur sem einkum eru á ferðinni að nóttu til.
- Tekið þátt í næturköfun með Sportkafarafélagi Íslands (að því gefnu að þú gangir í félagið).

Kafari klappar steinbíti í næturköfun.
Nemendur á næturköfunarnámskeiðinu upplifa lífríki sjávar í myrkrinu.
Það er sérstakt að upplifa undirdjúpin í myrkrinu. Sjá fiskana sofa með opin augu. Heyra andardráttinn í sjálfum sér.
Nánar um næturköfunarnámskeiðið
Verð námskeiðs er kr. 79.900.-
Greitt er fyrir námskeið við skráningu.
Athugið! Nemendur þurfa að eiga eða hafa aðgang að einu aðal neðansjávarljósi og einu vara neðansjávarljósi.
Innifalið í verði er:
- Kennslugögn.
- Kennsla.
- PADI skírteini.
Ekki innifalið í verði:
- Akstur á köfunarstað.
- Nemendur verða að gera ráð fyrir því að þurfa að koma sér sjálfir á köfunarstað.
ATH!
Námskeiðsgjald er ekki endurgreitt ákveði nemandi að ljúka ekki námskeiði.
Hvernig fer þetta fram?
Nemendur greiða námskeiðsgjald og fá afhent kennslugögn PADI Night Diver Specialty.
Fjöldi kafanna: 3
Hámarksfjöldi nemenda á hverju námskeiði eru: 4
Allar kafanir eru teknar eftir sólsetur.
Af augljósum ástæðum er ekki hægt að taka Night Diver Specialty yfir hásumarið hér á landi.
Er þetta námskeið fyrir þig?
Ef þú ert í einhverjum vafa hvort þú uppfyllir skilyrði til köfunarnáms hafðu þá samband.
Nemendur verða að hafa lokið að skylduköfunum úr PADI Advanced Open Water námskeiðinu.
Auk þess:
- Vera 17 ára eða eldri.
- Ekki vera myrkfælnir.
- Vera í góðu líkamlegu formi.
- Kunna að synda og líða vel í vatni.
- Fylla út PADI heilsufarsyfirlýsingu við skráningu eða skila læknisvottorði.
- Ekki vera barnshafandi.
- Allt námsefni PADI er á ensku.
- Marbendill köfunarskóli leggur áherslu á aðgengi námsefnis fyrir alla nemendur.
- Þess vegna höfum við boðið upp á útdrátt námsefnis á íslensku.
[yop_poll id=“1″]